vá eftir að ég byrjaði að vinna þá finnst mér dagurinn vera of stuttur.. sest varla við tölvuna alltaf að gera eitthvað annað
En fór í höfuðborgina í allan gærdag+kvöld svo það var vonlaust að borða eftir réttum danska (séstaklega afþví að ég er ekki búin að vera segja neinum að ég sé í honum, langar að byrja bara hægt og rólega án auka spurninga og þess háttar. en ég fékk mér grænmetislasanja í annað skiptið og rétt með mest megnis grænmeti smá kjúklingi og vatn … sem er mikil breyting hjá mér uppá annað borð. var vön að fá mér djúsí osta-beikon borgara með helling af frönskum og þónokkru gosi
En ef að þetta hefði ekki komið svona snögglega uppa þá hefði ég nú búið mér til mat til að taka með :/
En er þvílíkt ánægð að eiginlega allar innanundir bólurnar sem að ég var komin með á ennið eru farnar
húið öll að verða einsog barnarass
jibbí mína fyrstu viku fóru heil 4,7kg
bara þokkalega ánægð með það
ohhh finnst ég svo ein í þessu!!
allir nánustu í kringum mig grannir og skilja ekki afhverju ég get ekki borðað og borðað…
Þekki bara ekki eina einustu manneskju sem er búin eða er að breyta um lífstíl ..
GARG varð bara smá að losa
Ég er hreinlega ekki í lagi !! ég hugsa non stop um mat… alltaf um mat,og ég er vön að gera e-ð í málunum en ekki núna. Núna fæ ég mér bara vatnsglas og fer að taka til… alltaf nóg að gera þegar maður á 2 börn
Þegar ég er heima þá er ég stanslaust að borða en þegar ég er að vinna þá borða ég kannski ekkert allan daginn svo háma ég í mig eftir vinnu þar til ég fer að sofa..
á það meira að segja stundum til að finna fyrir “öfund” þegar mjótt fólk getur borðað og borðað alls konar drasl. ætli maður sé ekki eina manneskjan sem að hugsi svona
mikið áhrif á skapið hjá manni .. hundleiðinlegt veður og ég er ekkert búin að gera en geyspa í allan morgun. en maður á svo sem skilið svona úber letimorgun.
Það er bara búið að ganga mjög vel hjá mér. fór í verslunarferð í gær og börnin fengu kex til að narta í (venjulega borða ég rúmlega hálfann pakka léttilega) en ég fékk mér ekkert (jibbí) Ætlaði að fá mér eitt en hugsaði svo :afhverju á ég að vera svindla á sjálfri mér, það tapar engin nema ég! svo ég hætti við og fékk mér vatn og tyggjó og það dugði bara svona fínt
Er líka allveg búin að sjá að tónlist hefur hellings áhrif á mig. ef að ég er svöng þá get ég sett einhverja góða tónlist á og einhvernvegin dettur löngunin niður (furðulegt allveg hreint)
Mér finnst ég ekki vera feit .. ekki nema ég lít í spegil og er að klæða mig … og hvað þá þegar ég skoða myndir af mér ( ein í afneitun
Dagur 1
þegar ég vaknaði í morgun þá mældi ég mig alla frá toppi til táar svo steig ég á vigtina (sem að ég keypti mér í gær) og bloddy hell fékk vægt sjokk!! Þessa tölu vil ég ALDREI sjá aftur garg
er með nettan höfuðverk og lýginlega þreytu (ein í sykurleysissjokki) en þetta er bara samt svo ljúft að vita að eftir nokkra daga verð ég hætt að þrá sykurinn.. var farinn að borða nær einungis sykur og mæjó.. má nú ekki gleyma næstum 4ltr af gosi sem ég drakk á dag.
!! Finnst algjört möst að eiga ferskar kryddjurtir. !!